27.3.2007 | 22:11
Lán
Eitthvert mesta lán sem mig hefur hent á síđustu árum var ađ fá ađ stjórna litlum útvarpsţćtti á Rás 1 og spila ţar og kynna tónlist í eldri kantinum. Viđbrögđin hafa veriđ jákvćđ og afskaplega uppörvandi en ţađ dýrmćtasta er allt ţađ frábćra efni sem ég hef uppgötvađ í grúski mínu ţegar ég hef veriđ ađ afla mér efnis og upplýsinga. Nú er ég farinn ađ spila í grćjunum heima og í bílnum ýmsa stórkostlega listamenn - margir ţeirra hafa veriđ álitnir í hópi minni spámanna eđa jafnvel alls engir spámenn - sem ég hafđi annađhvort aldrei heyrt nefnda eđa aldrei heyrt neitt í. Suma - og ţađ er kannski verst en jafnframt lćrdómsríkast - hafđi ég einhvern tíma í fyrndinni dćmt ómögulega og hundleiđinlega. Svo lengi lćrir sem lifir. Ég veit ekki hvađ ţessir útvarpsţćttir fá ađ heyrast lengi, en ţetta hefur veriđ óskaplega gaman og ekki spillir ţađ ef hlustendur hafa eitthvert gaman af ţessu líka.
