Grunnar

Á morgnana geng ég stundum fram hjá tveimur blokkargrunnum, sem staðið hafa þarna nær óbreyttir í marga mánuði - mörg ár, held ég meira að segja. Í öðrum grunninum stendur gamall pallbíll og tvö hjólhýsi, annað líklega kaffistofa einhvers ósýnilegs manns sem þarna vinnur, en hitt virðist hafa dagað þarna uppi fyrir löngu. Eru engin takmörk fyrir því hvað byggingaverktakar mega halda lóðum lengi án þess að gera nokkurn skapaðan hlut við þær? Að þessu er sjón- og leðjumengun, auk þess sem nágrannarnir eru orðnir langþreyttir. Hvaða reglur gilda um svona nokkuð? Get ég kannski fengið lóð og haldið henni ef ég gæti þess að mæta þangað reglulega og taka fáeinar skóflustungur?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Sæll

Þakka þér fyrir að bæta mér við sem bloggvin. Góðar pælingar hjá þér. Grunar hvaða grunna þú sért að tala um og er þér algjörlega sammála. Annars eru ekki allar blokkir fallegar sem rísa, gott dæmi um skelfilega sjónmengun í þessum fallega bæ okkar eru gulu blokkirnar fyrir neðan Verkmenntaskólann. Þvílíkt og annað eins slys í sögu arkítektúr sem það gímald er.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 30.3.2007 kl. 20:33

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband