2.4.2007 | 09:21
Hrafn
Á vappi mínu til vinnu í morgun tók ég eftir hrafni sem sat uppi á ljósastaur og virtist hafa augastađ á einhverju framar á veginum. Ţegar nćr dró sá ég hvar hálfslítraferna af jógúrt lá í götunni. Krummi flaug síđan niđur, fékk sér vćnan sopa af ţví sem slest hafđi úr fernunni, tók hana loks í gogginn og flaug međ hana burt. Vćntanlega er fernan nú orđin ađ smásnifsum, enda greinilegt á háttalagi hrafnsins ađ honum ţótti mjólkurafurđin góđ.
Ég hélt satt ađ segja ađ svona sóđaskapur heyrđi sögunni til og ađ viđ Íslendingar vćrum hćttir ţeim landlćga ósiđ ađ henda rusli frá okkur ţar sem okkur sýnist, t.d. út um bílglugga. Mađur sem étur morgunmatinn sinn undir stýri á ţó trúlega viđ fleiri vandamál ađ glíma en sóđaskapinn einan. Og krummi, sem oft er skammađur fyrir draslarahátt, sýndi hér og sannađi ađ hann getur veriđ öflugur landhreinsari líka.