11.4.2007 | 11:51
Bond
Breytingar færast yfir mann með árunum. Sú var tíðin að ég gat ekki beðið eftir næstu James Bond-mynd og á þær gat ég (og get enn) horft aftur og aftur. Nú ber svo við að ég er enn ekki farinn að sjá þá nýjustu, sem mér skilst að sé mjög góð. Ég er meira að segja búinn að kaupa diskinn og hann bíður áhorfs við sjónvarpstækið heima hjá mér. Svo er spurningin hversu sálrænt þetta sé. Þori ég kannski ekki að kynnast Daniel Craig í hlutverkinu? Nei, það er fjandakornið ekki ástæðan. Ég held að ég sé kannski miklu fremur að geyma myndina þangað til ég er alveg 100% viss um að geta horft á hana í ró og næði og alla í einu. Heima hjá mér ríkir nefnilega sjaldnast himneskur bíófriður.
Mér þykir vænt um James Bond, þótt hann sé í rauninni ósköp asnaleg fígúra þegar grannt er skoðað. Og ég er ánægður með alla þá sem hann hafa leikið. Margir eru vondir við George Lazenby og Timothy Dalton og tala illa um þá og frammistöðu þeirra, en í mínum augum skiluðu þeir sínu barasta ágætlega. Sumir segja að Roger Moore hafi verið hálfgerður trúður í hlutverkinu en það er tóm tjara. Það er langt bil milli enskrar kímni og trúðsskapar. Fyrsta Bond-myndin sem ég sá í bíó var með Moore og hann var líka gamall kunningi síðan hann lék Dýrlinginn. Ég hreifst strax af karli í þessu hlutverki. Moore er vanmetinn leikari, e.t.v. aðallega vegna þess hvað hann hefur verið afkastalítill. Connery, sem mér finnst hins vegar stórlega ofmetinn og í raun afskaplega takmarkaður leikari, var að sjálfsögðu fínn Bond líka. Og ég kunni vel við Pierce Brosnan, sem hafði svipaðan bakgrunn og Roger Moore, þ.e. sjónvarpið, og tók hann sér að mörgu leyti til fyrirmyndar í túlkun sinni.
Í mínum augum eru allar Bond-myndirnar skemmtilegar, hver á sinn hátt. Ég vildi bara óska þess að Bond hefði verið leyft að eldast. Kannski gerir einhver góður leikstjóri mynd þar sem Bond fer að fást við illþýði á efri árum. Moore er að verða áttræður, Connery er 77 - mikið asskoti væri gaman að sjá annað hvort þessara glæsimenna kljást við einhvern aldraðan illingja - kannski elliheimilisforstjóra með heimsyfirráðadrauma?
Athugasemdir
Hahahhaha, snilld!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 11.4.2007 kl. 19:05
Hjartanlega sammála þér :) Bond myndirnar eru allar hrein snilld þó ólíkar séu og leikararnir fá allir 5 stjörnur hjá mér, flottir í hlutverkinu hver á sinn hátt. Ég á slatta af gömlu myndunum og er svo lánsamur að þær eru í uppáhaldi hjá strákunum mínum, þannig að enginn vandi er að fá Bond - bíó - frið á heimilinu annað slagið.
Hólmgeir Karlsson, 11.4.2007 kl. 20:14