Evróvisjón

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld... Jamm, mikill sannleikur það. Ég hef reyndar aldrei verið í hópi aðdáenda Gleðibankans, sem mér hefur alltaf þótt fremur slakt lag, miðað við að það er ættað úr smiðju góðskáldsins Magnúsar Eiríkssonar. Það átti aldrei erindi í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu, eins og keppnin hét í gamla daga. Íslensku lögin hafa yfirleitt ekki verið neitt sérstök, finnst mér, oft einhvern veginn svo ofhlaðin og yfirspennt - kannski eins og þjóðin.

Ég var að horfa á norrænu spekúlantana rabba um Evróvisjón og hafði gaman af, eins og endranær. Tvíeggjað hlýtur það þó að vera að láta Eirík gefa keppinautum sínum stig. Það eru fleiri þjóðernissinnaðir en við Íslendingar og þeir sem Eiríkur var vondur við gætu hæglega hugsað okkur þegjandi þörfina þegar þeir greiða atvæði eftir undankeppnina! En mikið skelfing voru sum lögin hroðaleg.

Ég er nú svo skrýtinn að ég hef gaman af Evróvisjón og enn skrýtnari er ég líklega fyrir að þora að viðurkenna það. Fæst lögin falla mér svo sem í geð, en inn á milli eru litlir gimsteinar. Mörg frábær lög hafa komið út úr þessu keppnishaldi en bróðurparturinn flokkast trúlega undir meðalmennsku og þar fyrir neðan. Ég hef reynt að vera duglegur að spila gömul evrólög í útvarpsþáttunum sem ég hef séð um á Rás 1 síðustu misserin, enda um vannýtta auðlind að ræða, að mínu áliti, auk þess sem mjög margt fólk hefur gaman af þessum lögum. Ég verð þó seint talinn mikill Evróvisjónspekingur eða meðal hörðustu aðdáenda keppninnar.

Og svo er það einn vinkill enn: Í kvöld heyrði ég í fyrsta skipti dægurlag frá Georgíu. Og ég hef svo sannarlega oft heyrt verri tónlist. Ég er alveg sannfærður um það, hvað sem hver segir, að það auðgar andann og víkkar sýnina að geta hlustað á tónlist frá svona mörgum og ólíkum þjóðum næstum því á einu bretti, jafnvel þótt ekki séu öll lögin tímamótaverk. Það sakar að minnsta kosti ekki og gerir engum mein. eurovisi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband