13.4.2007 | 23:47
Stórmenni
Konan var í vinnunni og börnin farin að sofa svo að ég settist niður og kveikti á sjónvarpinu, ef vera kynni að þar leyndist eitthvað almennilegt... og viti menn, haldið þið að ég hafi ekki lent á tónleikum með einum af mínum eftirlætistónlistarmönnum, Neil Sedaka, í norska sjónvarpinu. Þetta var upptaka frá tónleikum sem karl hélt einn með flyglinum sínum í Albert Hall í Lundúnum í fyrra og mikið óskaplega var gaman að horfa og hlusta á hann. Sedaka er tæplega sjötugur og hefur verið að í 54 ár, að eigin sögn. Hann hefur samið ógrynni melódískra, grípandi laga sem hann hefur annaðhvort sjálfur sungið og spilað til vinsælda eða látið öðrum eftir að gera það. Hann er menntaður konsertpíanisti frá Julliard og lét sig ekki muna um að spila eins og eina fantasíu eftir Chopin innan um smellina. Þessi glaðlegi, þakkláti, unglegi, lífsglaði og fjölhæfi tónlistarmaður er afburðamaður á sínu sviði og ég er alls hugar feginn að hafa rambað á þessa tónleika á stöðvaflakki mínu. 
