Einkaþjálfun

Fyrir nokkru kom maður sem ég kannast við til mín í vinnuna, ákveðinna erinda, og spurði mig svona í framhjáhlaupi hvort ég væri ekki að hugsa um að fara í einhvers konar líkamsræktarátak - hann væri nefnilega einkaþjálfari og gæti boðið mér þjónustu sína fyrir sanngjarnt verð. Ég afþakkaði pent og reyndi að draga inn bumbuna, sagðist vera nokkuð duglegur að ganga og synda og teldi það nægja í bili.

Eftir á fór ég að hugsa um hvort ég hefði átt að móðgast - vissulega er ég hvorki með sexpakkamaga né brjóstkassa af hörkunni sex, en ég er ekkert ósáttur við að vera kominn á fimmtugsaldurinn og bera svolítinn velmegunarvott framan á mér. Sú var tíðin að ég hefði áreiðanlega fornermast ógurlega og látið kauða heyra það, en sem betur fer er það tímabil á enda fyrir nokkru. Ég held líka að þessi ágætisdrengur hafi ekki verið að gefa í skyn að ég þyrfti á ærlegu átaki að halda, heldur aðeins verið að bjóða fram þjónustu sína, í von um að hagsmunir okkar færu saman.

Nú, svo kann vel að vera að ég þurfi í raun á þjálfun að halda - þá bíð ég bara rólegur því að eitthvað gerist sem fær mig til að viðurkenna það.

Ég hélt raunar að þessi líkamsræktarósköp Íslendinga væru að réna, en nýlegur ofurvöxtur í byggingum sem hýsa slíka starfsemi benda ekki til þess. Fyrirtækin bólgna og þenjast út, byggja á fínum lóðum og fá meira að segja vínveitingaleyfi. Já, það er vissulega nauðsynlegt að geta fengið sér fjóra stóra bjóra í pottinum eftir erfiða líkamsrækt og keyra svo heim á bílnum sem maður lagði beint fyrir utan dyrnar af því að guð forði manni frá því að þurfa að taka of mörg skref til og frá ræktinni...

Sjálfsagt eru þetta ýkjur, en ég ætla a.m.k. lyftingarað halda áfram að ganga og synda og láta það duga um sinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Gunnarsson

Sexpakkamaga segirðu - - -  ég heyrði á dögunum góða spurningu : Af hverju að vera með sixpack þegar maður getur verið með kút?

Mér finnst þetta góð spurning - ég er með kút. 

Valdimar Gunnarsson, 15.4.2007 kl. 21:35

2 Smámynd: Helgi Már Barðason

Satt segirðu, þetta er spurning eins og þær gerast bestar. Kannski væri kippumagi betra orð?

Helgi Már Barðason, 16.4.2007 kl. 09:39

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband