Sumar

Gleðilegt sumar, gott fólk! Læt fljóta með fyrsta erindið og það síðasta í sumarsálmi séra Friðriks Friðrikssonar, sem er einhver fallegasti og einlægasti óður til vorkomunnar sem ég þekki. Í barnaskólanum í eldgamla daga vorum við alltaf látin syngja sálm í dagsbyrjun og ættjarðarlag eftir hverjar frímínútur. Sumir sálmarnir voru hrútleiðinlegir, frómt frá sagt, en þennan þótti mér alltaf gaman að syngja.

06_akureyri_small

Dýrlegt kemur sumar með sól og blóm,

senn fer allt að vakna með lofsöngsróm,

vængjaþytur heyrist um himingeim,

hýrnar yfir landi' af þeim fuglasveim. 

 

Blessuð sumardýrðin um láð og lá

lífsins færir boðskap oss himnum frá:

"Vakna þú, sem sefur, því sumar skjótt

sigrað kuldann hefur og vetrarnótt."

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Gleðilegt sumar félagi  ..

Hólmgeir Karlsson, 19.4.2007 kl. 22:18

2 Smámynd: Inga Dagný Eydal

Æ takk Helgi minn fyrir að minna mig á þennan sumarsálm. Það er nokkuð ljóst í mínum huga að þarna er fjallað um Norðlenskt sumar. Gleðilegt sumar!

Inga Dagný Eydal, 24.4.2007 kl. 23:13

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband