21.4.2007 | 00:16
Lífið
Eins og einhverjir vita ritstýri ég vefsíðutetrinu www.akureyri.net . Þar var ég að skella inn svohljóðandi umsögn og veit að ekki eru mér allir sammála!
"Ekki tókst mér að sjá frumsýningu á leikriti Þorvalds Þorsteinssonar, Lífið - notkunarreglur, og það var ekki fyrr en í gærkvöldi að mér tókst að skjótast í gömlu Dynheima og sjá seinni sýningu kvöldsins, sem hófst klukkan 21.30.
Ég er voðalega línustrikaður þegar kemur að leiklist. Ég vil að leikrit séu um eitthvað, hafi söguþráð. Mér finnst ekki nóg að í leikritum sé margt skemmtilegt fólk sem segi skemmtilega hluti og valsi um í skemmtilegum búningum.
Því miður finnst mér leikrit Þorvalds Þorsteinssonar, Lífið - notkunarreglur, vera fátt annað en fremur innihaldsrýrt og í raun furðu dauflegt "sjó". Þorvaldur hefur ákaflega gaman af öllu því sem er gamalt og formfast, hvort sem það eru týpur eða orðatiltæki, og nýtur þess að leika sér með það, og stundum heppnast það ágætlega, en í þessu tilviki nægir það ekki til að bera uppi heila leiksýningu. Ef ekki væri fyrir prýðilega tónlist Megasar og góðan söng og hljóðfæraslátt væri þessi sýning hvorki fugl né fiskur. Því miður. Það er gnótt hugmynda á ferðinni hérna, en þær eru hver um sig á einhverju flögri um salinn og frábær frammistaða leikaranna nægir ekki til að skapa þann heildarsvip og þau heildaráhrif sem ég hefði viljað sjá og verða fyrir.
Ég naut hins vegar hljómburðarins á mínum gamla vinnustað, sem engum hefur sem betur fer tekist að eyðileggja enn. Og gott ef ég sá ekki gamla bók, sem hann pabbi minn átti, meðal leikmunanna. Þetta kom mér hvort tveggja í gott skap og vissulega skemmti ég mér ágætlega á köflum en ég átti í sannleika sagt von á betri, þéttari og áhrifameiri heild. Týpur í búningum duga í besta falli í smásketsa. Eins og segir í leikritinu, sem vissulega er á köflum ágæt ádeila: Það eru í þessu góðir sprettir, en þarna er ekkert sem ekki hefur verið sagt áður. Og því miður hefur það oft verið sagt með beinskeyttari og áhrifameiri - meira að segja skemmtilegri - hætti."
Jamm, eflaust er ég ósköp vondur við minn gamla vin og samstarfsmann, en ég held bara að hann geti svo miklu betur. Og nú er ekki von á góðu - það er nebbla að koma út lítil bók eftir mig í næsta mánuði og þá gefst honum e.t.v. færi á að hefna sín! Ég hefði betur verið í bomsum, eins og maðurinn sagði um árið.