22.4.2007 | 01:13
Elton
Horfði mér til mikillar ánægju á afmælistónleika Eltons á Skjá einum áðan. Ég hef verið dyggur aðdáandi karls býsna lengi, alveg síðan hann sló fyrst í gegn. Og yfirgaf hann ekki á niðurlægingartímabilinu, eins og sumir gerðu. Svona er ég nú góður drengur...
Það eina sem fór í taugarnar á mér var þetta venjulega: eftir hvert lag var klippt á tónleikahaldið og kvenrödd sagði okkur áheyrendum/áhorfendum hvað kæmi næst. Auglýsingahlé voru allmörg og svo voru örviðtöl við misfræg stirni þar sem þau sögðu eitthvað um afmælisbarnið. Þetta hefur áreiðanlega átt að vera afskaplega sniðugt og nýtískulegt - hratt, eins og lífið er hjá svo mörgum þessa dagana - en var bara geðvonskuýfandi. Mig langar að fá að sjá svona tónleika í heild sinni. Kannski með einu auglýsingahléi (pissipásu) en ekki eilífum truflunum. Sífellt nart skemmir tennur, segja þeir, og það á heldur ekki að narta svona í tónleika. Ég hefði viljað sjá umsagnir stirnanna, stórra og smárra, í sérþætti. Best þótti mér svar Michaels Caine, þegar hann var spurður hvað hann hygðist gefa afmælisbarninu. "Ég var nú að hugsa um að gefa honum bara pening," svaraði karl, ,,honum veitir ábyggilega ekki af nokkrum pundum."
Rödd Eltons hefur oft verið betri, en hann virtist í góðu jafnvægi, rólegur, yfirvegaður og hæstánægður með herlegheitin, sem og lífið og tilveruna. Gott mál. Ég varð svolítið hissa á því að gömul lög (fyrir 1980) voru nánast allsráðandi og ég held, svei mér þá, að hann hafi ekki sungið og spilað eitt einasta lag yngra en frá ofanverðum níunda áratugnum. Elton hefur gert margt vel síðan, en er greinilega sjálfur vel sáttur við elstu lögin sín og virðist þykja skemmtilegast að syngja þau. Ánægður varð ég þegar hann tók fallega minningarlagið sitt um John Lennon, "Empty Garden."
Það var líka gaman að sjá tvo gamla jaxla spila þarna með honum, þá Davey Johnstone gítarleikara og Nigel Olsson trymbil. Johnstone hefur verið fastamaður í liði Eltons alla tíð - hafi hann tekið sér hlé einhvern tíma hefur það a.m.k. ekki verið langt - og Olsson, sem var með honum á fyrstu plötunum, kom inná á ný fyrir nokkrum árum. Yndislegt að sjá svona flinka músikanta spila, svo ég noti orðalagið hennar ömmu minnar.