Ætt

Það þarf enginn að segja mér að ég sé kynlegur kvistur. Það hef ég vitað lengi. Eitt af því sem ég hef gaman af að gera þegar mér leiðist er að fara inn á Íslendingabók á netinu og slá þar inn nöfnum einhverra kunningja, eða þá þekktra Íslendinga, bara til að athuga hvort (eða öllu heldur hversu mikið) þeir eru skyldir mér. Og oft kemur niðurstaðan mér á óvart.

Þannig komst ég til dæmis að því að við Rúnar Freyr Gíslason leikari erum fjórmenningar. Málfríður langamma mín og Sigurður langafi hans voru systkini. Varla þarf að taka fram að eftir að ég sagði börnunum mínum tíðindin er vandlega fylgst með Rúnari og fjölskyldu þegar þau birtast í sjónvarpi eða blöðum.

Hér er líka ævinlega horft á Spaugstofuna, enda sagði ég börnunum eitt sinn að þau væru skyld Randver Þorlákssyni. Langafi minn og afi Randvers voru bræður. Þetta þótti stýrunum mínum stórmerk tíðindi og Randver frændi hefur um árabil verið nánast helgur maður á mínum bæ. Strákarnir mínir hittu hann einu sinni þegar þeir voru litlir, í sundi á Selfossi, og lifðu lengi á þeirri merkisstund!

Af sama meiði eru þær sérur og systur, Dalla og Yrsa Þórðardætur. Það vissi ég reyndar fyrir. Högni Óskarsson geðlæknir er líka þarna megin en stutt er síðan ég vissi það. Og ekki gerði ég mér grein fyrir því, fyrr en ég gluggaði í Íslendingabók, hversu náskyldur ég er ýmsum merkismönnum hér norðan heiða. Hinir landsfrægu "Kennedýbræður," kenndir við Höld og Bílaleigu Akureyrar, eru þeirra á meðal, en við erum þremenningar. Og hálfbróðir föðurafa míns var afi Hauks Halldórssonar, fyrrv. formanns Stéttarsambands bænda.

Langamma Hálfdans Steinþórssonar sjónvarpsmanns, var hálfsystir ömmu. Ég hafði ekki hugmynd um að þessi ágæti yngissveinn væri ættingi minn fyrr en ég sló honum inn í Íslendingabók, bara í fikti og að gamni mínu. Hann er vitaskuld miklu merkilegri náungi í mínum augum nú en áður - hvað þá barnanna, sem gapa af lotningu þegar þau sjá mynd af honum einhvers staðar.

Amma átti nokkrar systur og ein þeirra var amma Óskars Árna Óskarssonar, rithöfundar. Systkinin ólust ekki upp saman og því vissi ég ekki af tengslum mínum við Óskar Árna fyrr en fyrir örfáum árum.

Og þetta er bara brot af því besta, eða þannig... Það er gaman að hafa aðgang að svona upplýsingum, þó að eðlislæg forvitni manns (hnýsni, öllu heldur) óski þess stundum heitt að geta aflað sér svolítið ítarlegri upplýsinga um hvern og einn. Ég hef haft mátulega mikinn áhuga á ættfræði, en hann hefur aukist dálítið með tilkomu þessa möguleika. Og ég sé ekki betur en kominn sé grundvöllur fyrir hinum ágætustu ættarmótum og alls kyns komsammen þar sem náskyldir hittast og minnast forfeðranna...

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband