27.4.2007 | 08:27
Naglar
Tók eftir því á göngu minni í morgun að ótrúlega margir eru enn á nagladekkjum. Skrýtið. Apríl að verða búinn og hér hefur ekki sést snjókorn eða hálkublettur langalengi. Ég held að allir viti hvað það fer illa með göturnar að aka um á nöglum, en líklega er fólki bara sama. Eitthvað verða jú gatnaviðgerðarmennirnir að hafa við að vera.
Ef fólk gerði sér grein fyrir því hvað það fer illa með dekkin að aka um á nöglum myndi ástandið e.t.v. lagast. Þó efa ég það. Margir aka um á lélegum nagladekkjum og eru að reyna að eyða þeim upp. Í flestum tilfellum er þó trúlega hér á ferð hinn landlægi, íslenski trassaskapur - nema Akureyringar séu orðnir svona fyrirhyggjusamir vegna hugsanlegs maíhrets? Það hefur reyndar gert hret í maímánuði á undanförnum árum, svo að ég er kannski að misskilja þetta allt saman alveg hreint hrapallega? Líklega hefði ég betur þjöstnast um á nöglunum fram undir sautjánda júní, just to be on the safe side...