Veður

Las í einhverju blaði pistil blaðamanns um að honum fyndust veðurfréttirnar á Stöð 2 miklu betri en á RÚV. Ég er alveg hjartanlega ósammála. Veðrið á Stöð 2 er að vísu oft líflegra og litríkara, en einhvern veginn á ég óttalega erfitt með að taka nokkurt mark á Sigga stormi, kannski vegna æsifréttastílsins. Og stelpurnar, blessaðar, hver annarri huggulegri... æ, þær eru eflaust ágætar, skinnin, en einhvern veginn verða veðurfréttirnar (í mínum augum og agureyrieyrum) trúverðugri úr munni örlítið eldra fólks sem ekki er endilega að eltast við tískuna í hárgreiðslu og klæðaburði.

Ég held að þetta sé bara vegna þess að ég er nógu gamall til að muna eftir veðurfræðingunum Knúti Knudsen, Hlyni Sigtryggssyni og hvað þeir hétu nú allir, þessir heiðursmenn, sem sneru kassanum gamla svo listavel í Sjónvarpinu á árum áður. Afleiðingin er sú að ég kann best að meta veðurfregnir sem eru að miklu leyti lausar við æsing, glans og glamúr. Oftar en einu sinni hef ég staðið mig að því að hafa fundið sterka þörf fyrir að horfa á veðrið á RÚV eftir að hafa horft á það á Stöð 2. Svona bara til að fá almennilegt veður!

Djöh er maður orðinn gamall.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þú gamall??? Þetta er ekki spurning um aldur, heldur þroska eða vegalengd að fjarstýringu. Ég viðurkenni að ég horfi oftar á Stöð 2 ... en elska líka veðrið á RÚV. Sit oftast og horfi á gamla tækið mitt inni í bókaherbergi en þarf að labba nokkra "kílómetra" í stofuna til að skipta um stöð! Annars rúlar RÚV núna ... þessir Evróvisjónspjallþættir eru rosalega skemmtilegir, skítt með lögin, Eiríkur og kó rokka feitt! 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 27.4.2007 kl. 21:35

2 Smámynd: Inga Dagný Eydal

Allt er þetta nú hátíð miðað við veðurfréttir á breskri sjónvarpsstöð sem við Ingimar vorum að horfa á um helgina. Vorum reyndar að bíða spennt eftir "veðrinu" en okkur fannst hins vegar ekki mikið til um lýsinguna. Hún fólst í tveimur orðum "sunny and breezy". Ekki orð um lægðir, millibör eða metra á sekúndu. Ósköp snautlegt fyrir íslendinga. Spáin stóðst hinsvegar alveg.

Inga Dagný Eydal, 3.5.2007 kl. 15:44

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband