27.4.2007 | 21:34
Ellur
Ári hef ég gaman af Evróvisjónspekingunum norrćnu. Og ég var nokkuđ sammála áliti ţeirra áđan. Held ţó, eins og Eiríkur, ađ óraunhćft sé ađ ćtla honum efsta sćtiđ í undankeppninni. Og sjálfur vil ég gjarnan ađ lagiđ frá Georgíu komist áfram. Ég er hins vegar ekki hrifinn af makedónska laginu og Hvítrússinn er einhver mesti sćtabrauđsdrengur sem sést hefur síđan Donny Osmond var og hét (Donny er bara betri söngvari). Lagiđ frá Andorra, skemmtileg McFly- og Busted-stćling, kemst vonandi áfram á ferskleikanum og mikiđ hafđi ég gaman af diskófönkinu frá áttunda áratugnum sem Belgar buđu upp á. Lettar mega aftur á móti sitja heima mín vegna. Slóvenar sömuleiđis. Ţađ voru hins vegar Tyrkir sem gerđu mig aldeilis dolfallinn. Ađra eins hörmung hef ég hvorki séđ né heyrt lengi og ég botnađi ekkert í spekingunum sposku ađ gefa ţví svona mörg stig! En smekkur og spádómar eru gerólíkar Ellur og Tyrkir komast áreiđanlega áfram. Gangi ţér vel í Helsinki, Eiríkur, og takk fyrir skemmtunina í ţessum ţáttum.
Athugasemdir
Vinkona mín féll fyrir ungverska laginu ... önnur vinkona blađrađi viđ mig í síma ţannig ađ ég heyrđi ţađ ekki nógu vel. Hvernig fannst ţér ţađ ungverska?
Guđríđur Hrefna Haraldsdóttir, 27.4.2007 kl. 22:00
Mig minnir ađ ţađ hafi veriđ blúslag... bara mjög fínt og vel sungiđ. Ég varđ hins vegar hálfsjóveikur af vídeóinu ţar sem allt var sýnt afturábak!
Helgi Már Barđason, 27.4.2007 kl. 22:06