Stelpur

Í kvöld ætlum við hjónin að fara í leikhús. Í gamla skólann minn. Þar er okkur boðið á sýningu á leikritinu 5 stelpur sem Leikklúbburinn Saga frumsýndi í fyrrakvöld, en þá komumst við því miður ekki. Við ætlum því að drífa okkur í kvöld. Ætli ég reyni svo ekki að skrifa einhvers konar umsögn um stykkið á www.akureyri.net .

Leikklúbburinn Saga skipar alveg sérstakan sess í hjarta mínu, því að ég var í hópi þeirra sem stofnuðu hann í ársbyrjun 1976. Við höfðum drifið okkur á leiklistarnámskeið, nokkrir unglingar, hjá leikurunum Þóri Steingrímssyni og Sögu Jónsdóttur, en okkur fannst svo gaman að við tímdum ekki að hætta þegar námskeiðinu lauk. Við stofnuðum því lítið leikfélag sem fékk svo sitt núverandi heiti árið 1978, til heiðurs Sögu Jónsdóttur, og gekk þá í Bandalag íslenskra leikfélaga. Saga er elsta starfandi unglingaleikhús landsins og á sér merka sögu. Ég er ákaflega stoltur af að hafa tekið þátt í starfinu fyrstu árin og glaður yfir því að klúbburinn skuli enn starfa af krafti.

Ég hlakka til að sjá sýninguna, sem er víst einhvers konar ný og breytt útgáfa af Sjö stelpum sem Leikklúbburinn Saga sýndi 1979. Það verður spennandi að sjá hvernig til tekst. Leikstjóri er hinn bráðflinki leikari Ólafur Steinn Ingunnarson. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband