30.4.2007 | 10:47
Reykur
Um helgina birtist okkur Eyfirðingum einstaklingshyggja Íslendinga í sinni skýrustu mynd þegar nokkrir bændur í Eyjafjarðarsveit kveiktu í sinu svo að reykinn lagði yfir Akureyri og langt út á fjörð. Tekið skal fram að bændurnir höfðu til þessara gjörða fullt leyfi sýslumanns. Engu að síður er það merkilegt að fáeinum landeigendum skuli líðast að menga loftið svona óskaplega fyrir tugum þúsunda manna. Um tíma var varla líft úti fyrir reykjarmekki og ólykt. Á heimasíðu Slökkviliðs Akureyrar kemur berlega í ljós að þar á bæ eru menn ekki hrifnari af svona brunum en við almúginn, enda gagnsemi sinubruna dregin í efa af ýmsum sérfræðingum. Þetta er ljóta tímaskekkjan og tími til kominn að sýsli segi þvert nei við svona háttalagi. Það nær ekki nokkurri átt að einn eða tveir eldspýtnaglaðir bændur geti með þessum hætti spillt geði manna á góðviðrishelgum.
Athugasemdir
Sértækt leyfi sýslumanns gengur ekki framar almennum lagaákvæðum. Þau eru vissulega fyrir hendi í þessu efni.
Hlynur Þór Magnússon, 30.4.2007 kl. 11:01
Ég held nú reyndar að þessir bændur hafi ekki verið nokkrir - sennilega bara einn. En hann gerir þetta einmitt sér til skemmtunar - skemmtun hans er m.a. fólgin í því að gera það sem öðrum mislíkar af því hann hefur leyfið til þess. (Ég held að lögskýring HÞM dugi varla)
En mig minnir að leyfið atarna sé útrunnið - vonandi er það rétt.
Valdimar Gunnarsson, 30.4.2007 kl. 15:19
Ekki var það nú ætlun mín að gera einn sinumann að mörgum. Þakka ábendinguna.
Helgi Már Barðason, 30.4.2007 kl. 15:36
Þessi gjörningur er ekki aðeins mengandi heldur hefur hann alvarleg áhrif á suma sjúklinga, sérstaklega asmaveik börn.
Eyþór Ingi Jónsson (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 17:11