Deyfð

Mér finnst kosningabaráttan eitthvað svo daufleg núna. Veit ekki af hverju. Á liðnum árum hef ég yfirleitt eytt miklu púðri í að krossbölva öllum litskrúðugu kosningabæklingunum og sneplunum sem komið hafa inn um lúguna hjá mér en nú ber svo við að þeir eru teljandi á fingrum. Kannski kemur gomma af þeim núna síðustu dagana. Sjónvarpsauglýsingar eru heldur ekki tiltakanlega geðertandi, ósköp fáar og hófstilltar. Og pólitíkusarnir eru steinhættir að rífast. Það er aðeins einn flokksformaður sem eitthvað gjammar að ráði en hinir virðast hafa með sér samráð um að láta orðagjálfrið sem vind um eyrun þjóta því að enginn þeirra nennir að svara í sömu mynt. Öðruvísi mér áður brá. Meira að segja Óli Jó gat orðið viðskotaillur ef honum var misboðið. Ég held svei mér þá að stjórnmálamenn séu orðnir alltof miklir séntilmenn og -konur til að vera áhugavert sjónvarpsefni...

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband