2.5.2007 | 16:02
Auglýsingar
Stundum hef ég látið auglýsingar og gamanþætti fara í taugarnar á mér þar sem við karlmenn erum sýndir sem algerir aular, ófærir um nokkurn skapaðan hlut, ekki síst það sem tengist uppeldi eða heimilisstörfum. Í sumum auglýsingunum og þáttunum fara konurnar meira að segja reglulega illa með okkur! Oft hef ég verið að velta fyrir mér hvað yrði sagt ef hlutverkunum yrði snúið við. Hræddur er ég um að ekki yrði allt fólk sátt við það. Ég var að tala um þetta við einn kunningja minn um daginn og hann hafði mjög einfalt svar við því af hverju karlmenn eru oft
svona miklir eymingjar í gamanþáttum og auglýsingum. Er kenningu hans hér með komið á framfæri. Hann sagði: "Fólk hlær þegar hlutunum er snúið á haus, hlær að því sem er fáránlegt." Humm. Íhugunarefni?
