Mary

majavalsVar ađ hlusta á disk sem ég keypti mér nýlega, safndisk međ lögum bandarísku sálarsöngkonunnar Mary Wells. Keypti hann af hálfgerđri rćlni, vissi fátt annađ um Mary en ađ hún hafđi sungiđ lagiđ "My Guy" hér í gamla daga. Ómótstćđilegt lag, enda kom upp úr kafinu ađ diskurinn er hinn dásamlegasti. Ekki er veriđ ađ flikka neitt upp á upptökurnar eins og nú er til siđs heldur gamli hljómurinn látinn halda sér eins og hćgt er. Ekki spillir fyrir ađ diskinum fylgir fínasti bćklingur međ miklum upplýsingum um lögin og söngkonuna. Mary Wells lést fyrir aldur fram fyrir allmörgum árum.

Ég hef keypt nokkra svona diska á undanförnum árum, ţ.e. diska sem fást á góđu verđi en enginn virđist kaupa nema sérvitringar eins og ég. Oft renni ég blint í sjóinn, ţekki e.t.v. eitt eđa tvö lög međ flytjandanum en veit lítiđ meir. Margir ţessara listamanna hafa komiđ mér ánćgjulega á óvart og eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Má ţar nefna Barböru Lewis, Jimmie Rodgers, Billy Fury og Dido.

Senn líđur ađ ţví ađ tónlistarţátturinn minn litli á Rás 1, Pipar og salt, heyri sögunni til. Honum verđur a.m.k. gefiđ frí í sumar og svo veit enginn hvađ haustiđ ber í skauti sér. Ég er alls ekki ósáttur viđ fríiđ, enda allt annađ en auđvelt ađ halda úti svona ţćtti ţótt lítill sé. Ţađ er hins vegar óskaplega gaman. Og Pipar og salti á ég öđrum ţrćđi ţví ađ ţakka ađ ég fór ađ kaupa geisladiska á ný, en um tíma var ég eiginlega hćttur ađ hlusta á tónlist. Nú nýt ég ţess ađ hlusta á vandađ efni - af geisladiskum og vínýlplötum. Börnin mín eru mikiđ áhugafólk um dćgurtónlist, nýja jafnt sem gamla, og hafa sérstaklega gaman af ađ fylgjast međ mér fást viđ plötuspilarann.

Ţađ gleđur mitt gamla hjarta ađ nú skuli aftur fást plötuspilarar. Víđa erlendis rokseljast LP-plötur. Hringrás tilverunnar lćtur ekki ađ sér hćđa.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband