7.5.2007 | 00:06
Skipti
Jæja, í hönd fer nokkuð stór dagur. Konan mín á afmæli og besta vinkona dóttur minnar sömuleiðis, svo að það verður mikið um að vera. Tvíburarnir fara í árlega skoðun til tannlæknis og með hana verða vonandi allir ánægðir - ég efast þó um að veskið mitt æpi af gleði. Og í fyrramálið byrja ég í nýju starfi. Aðalstarfi - ég er ekki að fara að bæta á mig einu djobbinu enn, hvort sem þið trúið því eður ei! Það verður dálítið skondið. Ég hef verið á sama stað í nærri fjögur og hálft ár en hoppa nú yfir í allt aðra rútínu og öðruvísi vinnu. Ég er svo sem ekki búinn að kveðja gamla staðinn endanlega enn, nýr maður tekur ekki við alveg strax og ég reikna með að þurfa að koma honum inn í starfið þegar þar að kemur. En þetta er spennandi. Ég veit að ég fæ góðan leiðbeinanda á nýja staðnum svo að ég er ekki kvíðinn hvað það snertir.
Konan skipti um vinnu um áramótin svo að þetta verður ár hinna miklu atvinnuskipta. Og við höfum breytt ýmsu öðru, ég er t.d. farinn að ganga og taka strætó í vinnuna miklu oftar en áður og finn mikinn mun á skrokknum, en ekki síður á samviskunni. Hún mátti nú líka alveg við því að skána, blessunin.
Og svo eru það kosningarnar og Evróvisjón. Ég vonast eftir þrennu um næstu helgi: Góðum kosningaúrslitum, velgengni hjá Eiríki og skánandi veðráttu!
Athugasemdir
Til hamingju með konuna og nýju vinnuna. það er alltaf gott að skipta um starf reglulega en halda í makann
Guðrún Vala Elísdóttir, 7.5.2007 kl. 21:27
Til hamingju með konuna þína - hvar ertu að fara að vinna?
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 7.5.2007 kl. 22:46