15.5.2007 | 20:23
Áhyggjur
Ég hef svolitlar áhyggjur af íslenskum stjórnmálum. Ekki alvarlegar, en nokkrar. Mér finnst þau nefnilega vera að leita talsvert út til endanna. Til hægri og til vinstri. Út í öfgar. Á Íslandi er reyndar ekki til neinn hægri-öfgaflokkur (sumir vilja pota Frjálslyndum í þann bás, en ég er ósammála) en vegna þess að þau Geir og Þorgerður eru sossum vingjarnlegt fólk, traustvekjandi og föst fyrir láta virkilega hægrisinnaðir menn sér lynda að tylla sér undir markísuna hjá þeim. Hvort sem Sjálfstæðisflokknum er nú greiði gerður með því eða ekki. Vinstra megin eru hinir svokölluðu vinstri grænir, sem ég get ekki með neinu móti komið auga á að séu grænir, bara afturhaldssamir. Ég held því fram að Samfylkingin sé hinn raunverulegi lúser kosninganna. Stór, breiður flokkur sem er búinn að vera lengi í stjórnarandstöðu á nefnilega ekki að tapa fylgi. Hann á að bæta við sig. Ekki litli öfgaflokkurinn lengst til vinstri. Og af þessu hef ég svolitlar áhyggjur.
Ég vona bara að við fáum milda stjórn, sem sýnir festu og hóflega íhaldssemi en hugsar vel um smæstu þegna sína og lokar ekki á Evrópudyrnar. Hún þarf líka að vera sterk. Ég held að flestir viti um hvers konar stjórn ég er að tala.