18.5.2007 | 22:27
Einfaldleiki
,,Hafðu það einfalt" er heilræði sem mér var eitt sinn gefið og við erum býsna mörg sem höfum fengið það góða ráð við ákveðin þáttaskil í lífinu. Ég hef reynt að fara eftir þessu en oft er frammistaðan heldur slök. Ég er alveg einstaklega laginn við að flækja tilveruna fyrir sjálfum mér. Kannski er ég að sækja í spennu eða langar bara að lífga upp á lífið, en sem betur fer er eins og æðri máttarvöld grípi stundum í taumana og hafi vit fyrir mér. Eitthvað þessu líkt gerðist í dag. Ég var minntur á nauðsyn þess fyrir jafnvægi og velgengni í einkalífi og starfi að hafa hlutina einfalda. Og um leið og ég skildi að nú var verið að banka í öxlina á mér og segja mér að vera nú ekki að flækja líf mitt að óþörfu leið mér miklu betur.
,,Hafðu það einfalt. Góðir hlutir gerast hægt. Einn dag í einu." Þetta eru allt saman klisjur, en þær eru klisjur vegna þess að svo margoft hefur komið í ljós, í lífi svo ótalmargra manna og kvenna, að þetta er mikill og stór sannleikur. Þess vegna sest ég nú niður og skrifa bloggfærslu handa sjálfum mér. Til þess að minna mig á að hafa hlutina einfalda, að góðir hlutir gerast hægt, og að það er nauðsynlegt fyrir geðheilsuna að taka dag í senn, eitt andartak í einu.
Athugasemdir
hey ég á alveg frábæra bók sem heitir Einfaldaðu líf þitt og eftir að ég tileinkaði mér ýmislegt úr henni hefur líf mitt BARA batnað....
Guðrún Vala Elísdóttir, 18.5.2007 kl. 22:37