20.5.2007 | 01:35
Gaman
Ég er skammarlega latur við að fara á myndlistarsýningar, en í dag álpaðist ég inn á sýningu á lokaverkefnum nemenda við Myndlistarskólann á Akureyri. Ekki sé ég eftir því. Frábær sýning. Þvílík hugmyndaauðgi - og forkunnarvel unnið úr hugmyndunum. Það er gaman að fara á góðar myndlistarsýningar. Fjölskyldan naut þess að ganga um sali Myndlistarskólans í dag, ekki síst börnin. Strax að lokinni ferð okkar um sýninguna báðu þau um að fá að fara aftur á næsta ári. Það verður auðsótt mál.