Kristján

Sem íbúa Norðausturkjördæmis líst mér auðvitað vel á að Kristján L. Möller skuli vera orðinn samgönguráðherra. Hans bíða ýmis stór mál, misbrýn, í kjördæminu og nægir að nefna Grímseyjarferjuna og Vaðlaheiðargöngin. Norðausturhornið bíður líka eftir langþráðum vegabótum. Ég vona bara að Kristján verði ekki svo upptekinn við að hygla okkur kjördæmungum sínum ekki að við gjöldum þess óvart - ef þið skiljið hvað ég á við. Ég þekki kennara sem kenndi börnunum sínum og var óafvitandi miklu harðari við þau en aðra nemendur, bara vegna þess að hann var alltaf að gæta þess að verða ekki sakaður um að hygla börnunum sínum.

En ég hef engar stórar áhyggjur, svo sem. Ég held að Kristján sé fínn maður í þetta djobb. Og það eru fleiri kjördæmi sem kalla á bættar samgöngur. Ég vona til dæmis að Austurlandið fái sinn langþráða skammt af malbiki en ég vona líka sannarlega að Suðurstrandarvegur verði lagður sem fyrst. Það yrði sannkölluð samgöngubót fyrir Sunnlendinga að þurfa ekki að taka á sig krók og fara í gegnum Reykjavík til að komast á Keflavíkurflugvöll.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband