Bætur?

Þórsarar höfnuðu því á fjölmennum félagsfundi að svæði þeirra yrði byggt upp samkvæmt tillögum íþróttaráðs Akureyrar. Þar er gert ráð fyrir myndarlegum frjálsíþróttavelli og vilja Þórsarar fébætur fyrir, ef ég skil fréttina rétt. Akureyrarbær ætlar að láta Þórsara fá 42,5 milljónir á næstu fimm árum og KA-menn annað eins, samkvæmt nýjum rekstrarsamningum sem bíða undirritunar.

Ég hef aldrei skilið íþróttamál á Akureyri - eða íþróttamál yfirleitt - en veit bara að í þetta er varið óhemju fé. Félögin hafa ætíð átt dygga fulltrúa í bæjarstjórn sem barist hafa duglega fyrir hagsmunum þeirra. Samt eru félögin alltaf á hvínandi kúpunni. Síst vil ég draga úr gildi íþróttastarfs, en mér er farið að þykja það býsna dýrt. Er allt þetta starf virkilega bráðnauðsynlegt í ekki stærri bæ? Er svona mikil nauðsyn á stórliðum og afreksmönnum í öllum mögulegum og ómögulegum íþróttagreinum? Eða er íslenska hófleysið að sliga íþróttafélögin?

Svo hélt ég í einfeldni minni að Akureyrarbær ætti landið sem notað er undir íþróttasvæði Þórs. Af hverju ættum við útsvarsgreiðendur að borga íþróttafélagi fébætur fyrir land sem það á ekki, heldur við? Mér skilst að Þórsurum hafi verið boðið land í staðinn. Ég vil a.m.k. fotboltimiklu heldur láta útsvarið mitt renna til uppbyggingar hjúkrunar- og dvalarheimila í bænum heldur en í svona vitleysu.

Það er margt sem ég ekki skil. Þetta er eitt af því. Ég vona bara að frjálsíþróttafólki verði búin almennileg aðstaða, hvar sem hún verður, og að hún verði þar sem það er velkomið. Frjálsar íþróttir hafa mætt afgangi á Akureyri alltof lengi - getur það verið vegna þess að þær eru ekki á könnu stóru íþróttafélaganna tveggja?

Spyr sá sem ekkert veit - ekki einu sinni af hverju stóru íþróttafélögin eru tvö. Nægir okkur ekki eitt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Þú ert ekkert einn um að skilja íþróttapólitíkina á Akureyri illa. Rámar í að hafa heyrt að Baugur vildi byggja vel upp ef hann fengi Akureyrarvöll - en hefur örugglega misheyrst. En heyrði eitt sinn á tal Jóhannesar þar sem hann var að freista þess að sannfæra viðmælenda sinn um ágæti þess að Baugur fengi Akureyrarvöll til að byggja verslun.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 25.5.2007 kl. 22:29

2 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Sæl  Helgi

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunnar að forvarnagildi íþrótta sé ofnotað af fulltrúum íþróttafélaga og þá til að krækja í peninga.  Í þessu er nefnilega einföld villa og hún byggist á þessu:

Villan: Börn og unglingar sem eru í íþróttastarfi er síður hætt við að nota áfengi, tóbak og fíkniefni. Þetta hefur verið rannsakað og þetta er staðreynd.  Í framhaldi þessa segja íþróttafélögin: Látið okkur fá fé því er vel borgið í forvarnir og eflir heilsu barna og unglinga.

Staðan:  Þau börn sem eru feit fara ekki í íþróttir.  Þau börn sem eiga foreldra sem ekki borga fyrir íþróttaiðkun fara ekki í íþróttir.  Þau börn sem eru í slæmum félagsskap og eru í áhættuhópi vegna heðgunar fara flest ekki í íþróttir.  Niðurstaðan er einföld; íþróttir eru ekki fyrir alla, þær ná ekki til allra og ná síst til þeirra sem þyrftu þeirra mest með.

Ef við útsvarsgreiðendur færum fram á að bæjarfélögin styddu skáta, listamenn til að halda námskeið með börnum, kórastarf, ungar pophljómsveitir, kristilegt barnastarf og já allt sem byggir börn upp, þá værum við að notast við jafnræðisreglu stjórnsýslulaga.

Eins og staðan er núna ræður hefðin og kerfið.

Eyjólfur

Eyjólfur Sturlaugsson, 26.5.2007 kl. 00:07

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband