Skip

Kolefnisjöfnun er mjög til umræðu núna, enda hið besta mál. Bráðsnjallt t.d. hjá bílafyrirtækjum að fara þessa leið meðan umhverfisvænna eldsneyti en bensín er ekki komið í almenna notkun. Margt er að gerast í þessum málum og er það vel. Ég er eindreginn fylgismaður stórfelldrar trjáplöntunar og landgræðslu og andstæðingur bensín- og dísilfnyks, svo að ég er viss um að ég á eftir að fylgjast vel með.

En svo fór ég allt í einu að hugsa um skipin. Hvað með þau? Einhvern tímann heyrði ég sagt að býsna drjúgur hluti gróðurhúsalofttegunda, sem Íslendingar sendu frá sér, kæmi úr skipaflotanum. Hvað ætlar útgerðin að gera? Nú hefur að vísu verið stofnað félag um svokallaða lífdísilframleiðslu sem fara skal fram á Krossanesi við Akureyri og meiningin að nota þessa dísilolíu á fiskiskipin okkar, en það breytir því ekki að eftir sem áður er um dísilolíu að ræða og það er víst sama hvaðan hún er upprunninn, alltaf mengar hún. Og tæplega framleiðist nóg á allan flotann þegar þar að kemur.

Hér með er skorað á útgerðarmenn að gera eitthvað í sínum málum, sem líka eru okkar mál, og ekki bara okkar Íslendinga. Ætli útgerðin sér að sneiða hjá þessari umræðu fyndist mér það eiginlega hreinræktað ábyrgðarleysi. Það er engin afsökun að losunin skuli eiga sér stað úti á sjó! Er ekki löngu kominn tími til að kolefnisjafna sægreifana?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband