30.5.2008 | 18:01
Heimur versnandi fer
Ég á bara ekki orð. Hvernig í ósköpunum fóru drengirnir að því að láta nappa sig á leiðinni út úr Tiger? Hvaða áhrif hefur þetta á frægðarsól þeirra? Og hvað næst? Mun ég e.t.v. lifa þann dag að það fréttist af Siggu Beinteins í Rúmfó eða Regínu Ósk í Hagkaupum?
Ykkur að segja (og þið látið þetta ekki fara lengra) sá ég einu sinni Arnald Indriða í bíó. Hugsið ykkur! Á almennri sýningu bara!
Ji.
Jónsi í Sigur Rós í Tiger | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Skandall. Ég sá einu sinni Jónsa í Svörtum fötum í Bónus, ég hef hingað til ekki þorað fyrir mitt litla líf að segja frá því.
Gunnur B Ringsted, 31.5.2008 kl. 18:09