27.8.2008 | 10:45
Of góður og fínn fyrir kaffe og sjokólaðe
"Má ekki bjóða þér meira kaffi?"
"Nei, takk, ég er góður."
"En viltu kannski súkkulaðimola?"
"Nei, ég er fínn."
Ég skildi ekki af hverju gesturinn hafnaði kaffinu á þeim forsendum að hann væri góður. Má gott fólk ekki drekka mikið kaffi?
Gestur minn var heldur ekki tiltakanlega fínn, en svo sem ósköp snyrtilegur, í gallabuxum og stuttermaskyrtu. Of fínn fyrir súkkulaðið, samt, hvernig svo sem stóð á því.
Athugasemdir
Vona að þú sért góður......
Hólmdís Hjartardóttir, 27.8.2008 kl. 10:46
Þó maður sé góð/ur þá er maður aldrei of fínn fyrir súkkulaði
Letilufsa, 1.9.2008 kl. 22:29