Fáar betri

dhKirsten Dunst er afbragðsleikkona og hefur líka það sem næstmestu máli skiptir: há kinnbein! Ég get vel séð Dunst fyrir mér í hlutverkinu, enda Debbie e.t.v. orðin fullroskin til að leika sjálfa sig á yngri árum.

Deborah Harry er reyndar nokkuð afkastamikil leikkona og var t.d. óborganleg í gömlu útgáfunni af Hairspray um árið. Nú leikur hún gjarnan ömmur ... og ferst það vel úr hendi.

Þegar þetta er skrifað er nýjasta lag kerlu, Two Times Blue, á spilaranum hérna til vinstri. Það er af nýju sólóplötunni hennar, sem fengið hefur misgóða dóma.


mbl.is Kirsten Dunst leikur Debbie Harry
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þegar maður hugsar um það þá eru þær nú ekkert svo rosalega ólíkar!

Huld S. Ringsted, 16.10.2007 kl. 20:22

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband