Færsluflokkur: Bloggar
27.3.2007 | 22:11
Lán
Eitthvert mesta lán sem mig hefur hent á síðustu árum var að fá að stjórna litlum útvarpsþætti á Rás 1 og spila þar og kynna tónlist í eldri kantinum. Viðbrögðin hafa verið jákvæð og afskaplega uppörvandi en það dýrmætasta er allt það frábæra efni sem ég hef uppgötvað í grúski mínu þegar ég hef verið að afla mér efnis og upplýsinga. Nú er ég farinn að spila í græjunum heima og í bílnum ýmsa stórkostlega listamenn - margir þeirra hafa verið álitnir í hópi minni spámanna eða jafnvel alls engir spámenn - sem ég hafði annaðhvort aldrei heyrt nefnda eða aldrei heyrt neitt í. Suma - og það er kannski verst en jafnframt lærdómsríkast - hafði ég einhvern tíma í fyrndinni dæmt ómögulega og hundleiðinlega. Svo lengi lærir sem lifir. Ég veit ekki hvað þessir útvarpsþættir fá að heyrast lengi, en þetta hefur verið óskaplega gaman og ekki spillir það ef hlustendur hafa eitthvert gaman af þessu líka.
