19.11.2007 | 15:33
Ábyrgðarlaust
Alltaf finnst mér nú "ábyrgðarlaust" fallegra orð en "óábyrgt". Líklega eiga tvö tvíhljóð illa saman í upphafi orðs. "Óásættanlegt" er líka miklu verra orð en "óviðunandi" að þessu leyti. Kannski minna þessi óá-orð mig bara á einhverja óáran. En ég er nú líka svo skrítinn.
Óábyrgt að halda áfram með Bitruvirkjun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mikið er ég innilega sammála þér!
Lára Hanna Einarsdóttir, 19.11.2007 kl. 16:42