Efling

Ekki er öll vitleysan eins.


Auga fyrir auga

Sjónhimnulos á hægra auga leiddi til skurðaðgerðar. Í kjölfar hennar myndaðist ský á auganu, en sjónhimnulos eykur einmitt hættuna á slíku.  Það þýddi augasteinaskipti á báðum augum. En augasteinaskipti auka líkurnar á sjónhimnulosi! Nú er ég að jafna mig eftir aðgerð á vinstra auga vegna sjónhimnuloss og vona innilega að ég muni halda þokkalegri sjón. Já, sjaldan er ein báran stök.


Góði maðurinn

Ég var farinn að halda að vikan myndi líða án þess að nokkur eymingi eða fórnarlamb færi að væla undan óréttlæti heimsins í fjölmiðlum, en þá kom ríkisbubbi nokkur til bjargar, maður sem hefur verið mjög upptekinn af því upp á síðkastið að sýna okkur meðaljónunum hvað hann er rosalega góður gaur.

Þegar menn hafa úr milljónum og jafnvel milljörðum króna sð apils á hverjum degi og halda að þeir geti mótað skoðanir alls almennings fatast þeim stundum flugið. Ég vona að þannig fari fyrir þessum manni. Við eigum að beina athyglinni að þeim sem minna mega sín, ekki þeim heimsku sem hreykja sér hátt vegna þess hvað þeir eru "góðir".


Aumingi vikunnar

Mér sýnist samkeppnin um titilinn "Aumingi vikunnar", eins og Óttar geðlæknir kallar það, stöðugt fara harðnandi. Fórnarlömbin, sem eiga það helst sameiginlegt að segjast ekki vera fórnarlömb, ættu að endurskilgreina sig og gefa hinum raunverulegu fórnarlömbum samfélags okkar tækifæri til að rétta sinn hlut.

 


Fækkun

Enn vælir Fangelsismálastofnum vegna fjárskorts. Vinkillinn lætur sitt ekki eftir liggja í þeim efnum frekar en aðrir ríkisforstjórar.

Ég sé ekki betur en að starfsmönnum í yfirstjórn Stofnunarinnar hafi fjölgsð nokkuð á síðustu árum.

Þar má finna nokkra ónytjunga sem Stofnunin gæti losað sig við og sparað þannig dálítið fé sem nota mætti til að bæta hag fanga og aðstandenda þeirra.

Það mætti til dæmis byrja á staðgengli forstjóra. Hefur konan sú eitthvað sér til frægðar unnið?


Falleinkunn

Ofboðslega eru þær leiðinlegar, athyglisfýlubomburnar á Alþingi. Væri ekki sniðugra að láta eitthvað gott af sér leiða?


Siðareglur

Ég verð að játa að mér finnst alveg dásamlegt hvað Siðareglu-Sunna er blind á eigin galla. Ef hun væri sjálfstæðiskona hefði hún snarlega verið kölluð siðblind. Svona er pólitikin.


Flóttamenn eða hrappar?

Óskaplega er góða fólkið reiðubuið að ganga langt ril að vera ósammála þeim sem eru raunsæir og svífa ekki um á bleiku skýi. Ídeal-veröldin er fín, en því miður er hún draumsýn.

Auk þess legg ég til að Ísraelsríki verði lagt niður. Ríki byggð á trúarbrögðum kunna ekki góðri lukku að stýra (sbr. Íran). Tvær hliðar á sama peningi.


Úlfaldagerðin hf.

Mér sýnist Íslendingar enn kunna að gera úlfalda þótt víða vanti mýflugurnar þetta árið...


Æ

Það á ekki af Eflingu að ganga.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband