Færsluflokkur: Bloggar

Gleymska

Ég, Helgi Már Barðason, viðurkenni hér með að hafa gleymt og vanrækt að blogga upp á síðkastið.


Kjör

Þá eru framboðslistarnir óðum að birtast. Kvenmannsleysi hrjáir Sjálfstæðisflokkinn, Steingrímur J. hrjáir Vinstri græna, brottför Brynhildar mun áreiðanlega hrjá Bjarta framtíð, píratar vega hver annan, Samfylkingin er því sem næst horfin, Dögun er enn í náttmyrkrinu ef marka má fylgiskannanir og ástandið í Framsókn er hreinlega grátbroslegt (eða harmskoplegt, eins og Gísli Jónsson menntaskólakennari vildi kalla það). Kannski það endi með því að Evrópusinninn Helgi Már Barðason kjósi Viðreisn?


Tónleikar

Jæja, þá er Helgi Már Barðason enn búinn að kaupa sér miða á tónleika. Hvar endar þetta? cool


Heitt

Mikið déskoti getur 35 stiga hiti verið óægilegur, ekki síst ef hitastigið er þannig dag eftir dag. 


Höftin og afinn

Ég minnist fréttarinnar um afann, fyrir nokkrum árum, sem ætlaði að senda barnabörnum sínum í útlöndum svolitla peninga í afmælisgjöf, en gat það ekki þar sem hann gat ekki framvísað farseðli.

Ég botna ekkert í vanþakklæti fólks, nú þegar loksins er verið að losa almennilega um höftin. Nú getum við senn fengið evrur og dollara í bönkum án þess að ganga í gegnum hálfkommúníska farseðlaþvælu. Ég skildi reyndar aldrei af hverju Seðlabankinn var að eltast við þúsundkalla almennings með þessum hætti, en er afar feginn að þessu skuli loksins vera að ljúka.

Margir horfa bara yfir sig hneykslaðir á eitthvert ákvæði um að einstaklingur megi aðeins kaupa eina fasteign á ári erlendis.

Þetta mega flestallir Evrópubúar gera, aðrir en Íslendingar. Er ekki kominn tími til að fólk geti sest að erlendis án alltof mikils skrifræðis, undanþágukjaftæðis og annars þvættings? Auðvitað kaupa ekki margir fleiri en eina fasteign á ári. En einhver verður reglan að vera.

Ég hlakka til að geta aftur farið í banka á Íslandi og fengið skikkanlega mynt, án fyrirhafnar.

Auk þess legg ég til að íslenska krónan verði lögð niður.


Vonska

Konukind ein virðist hafa tekið að sér að sparka í tiltekna menn þegar þeir eru liggjandi og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Um leið nærir hún gamlar lygar sem hún getur ekki lengur bakkað út úr. Allt fyrir samúð, athygli og fimmtán mínútur. Mikið óskaplega á sumt fólk bágt. Megi Guð fyrirgefa því.


Ekki eru ætíð jól...

...og oft er í holti heyrandi nær. Það held ég.


Mörg er búmanns raunin...

...og margt mannanna bölið. Hver hefur sinn djöful að draga og kross að bera. Og það held ég.


Hroki og hleypidómar

Held að þessi orð lýsi mörgum Íslendingum vel, því miður wink


Tuð

Mikið er gaman að sjá að Íslendingar skuli hafa jafnað sig eftir frammistöðu landsliðsins á Evrópumótinu og vera farnir að net-tuða hver í öðrum á ný. Hún er skemmtilega leiðinleg, þessi þjóð.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband